27.9.01
Takið þátt í skoðanakönnun smellið á hliðið og smellið á linkinn í kannanahorninu. Kobbi er verndari þess. 26.9.01
Þegar ég vaknaði í morgun var ég orðinn árinu eldri. - Til hamingju með það. - Takk fyrir.
Seinustu ár frá því að ég varð tvítugur hef ég misst eitthvað. Svo dæmi sé tekið má nefna snerpuna og svo hraðann. Í ár átti sér stað ný upplifun. Þegar ég vaknaði í morgun fann ég ekki að eitthvað vantaði. Ég var heill og sá heiminn í nýju ljósi. Yfir nóttina hafði hellst yfir mig reynslan. Nú get ég loksins bætt fyrir það sem ég hef misst með reynslunni. Svo ég vitni í orð flest allra íþróttafréttamanna Íslands ef ekki heimsins. "Hann er ekki eins snöggur og áður, en hann bætir það upp með reynslunni!" 25.9.01
Ég gerðist ótrúlega kræfur í dag og fjárfesti mér í nýju hjóli. Scott USA er merkið. Fékk ég gripinn með ca. 30% afslætti í Markinu. Átti ég fínasta hjól fyrir að ég hélt. Mongoose Manuver hét gripurinn eða öllu heldur draslið þegar litið er yfir farinn veg í ljósi nýliðinna atburða. Hlakka ég óneitanlega til að hjóla í skólann á nýja hjólinu mínu. "Oh, I wish it were day" og "Will it never be morning" eins og einhver orðaði það. 24.9.01
20.9.01
Rakstur. Ég hef gert það vana mínum að raka höfuð mitt allt með reglulegu millibili. Nú hefur það brunnið viðseinustu skipti að ég hef ekki búið svo vel að eiga raksápu. Hef ég leist það svo að ég hefi stolist í Gillette Satin Care raksápu systur minnar. Er hún stífari og stinnari en hin hefðbundna raksápa Gillette fyrir karla og hugnast mér það betur. Eini gallinn sem ég finn að Satin Care raksápunni er þessi helvítis kellingalykt sem þeir þurftu að troða í sápuna. Ef væri ekki fyrir hana myndi ég hiklaust skipta um raksápu. 16.9.01
Ánægjuleg helgi í alla staði. Eftir einstaklega velheppnaða vísindaferð til Taugagreiningar var haldið út á lífið. Vefleiðarinn gerðist reyndar á síðustu stundu sölumaður fyrir Háskólaball á Brodway með þeim glæsilega árangri að selja ekki einn einasta miða. Er slíkt ver og eykur ekki hróður manns! Gerðist vefleiðari kokhraustur þegar leið á kvöld og lét miðasöluna ekki draga úr hreysti sinni er hann lagði út í veðmál við Helga Karl um að Mark Wright hefði skorað mark Liverpool á móti Manjúnæted[=djöflinum] þegar Pallister af öllum mönnum skoraði tvö mörk. Já, kraftaverk gerast enn. Mark Wright skoraði 7 mörk fyrir Liverpool á ferli sínum og ekki var var eitt þeirra á móti djöflinum, svo nú skuldar vefleiðarinn nú kippu öls.
13.9.01
Viðurstyggilegir atburðir í Bandaríkjunum valda vefleiðara hugarangri. Þessir menn standa að baki svona eru ekki menn þeir eru ófreskjur. Vefleiðarinn vill minna á þriggja mínútna þögn sem skipulögð hefur verið kl. 10:00 á morgun til minningar fórnarlamba hroðaverkanna. 10.9.01
Til að leiðtrétta leiðinda misskilning sem risið hefur í kjölfar skrifa minna þá leiðréttist hér með að Sveinn þessi sem samdi vísukornið hér að neðan er kenndur við éluvog og er á engan hátt tengdur Sveini Hákoni Harðarsyni. Biðst ég svein innilegrar velvirðingar á þessu og vona að skrif mín hafi ekki komið skömm á hans góða nafn.
Ég sá að á MTV tónlistamyndbandaverðlaunaafhendingunni var Aaliyuh minnst. Sagði Janet Jackson að framlag Aaliyuh til tónlistar og þau áhrif sem hún hafði á fólk voru meiri á hennar stuttu 20 árum en aðrir hefðu á lífstíð. Er ég að missa af einhverju??? Romeo is bleeding var óhemju slöpp mynd. Ég sé ekki fram á að eftir 20 ár muni fólk segja: "Æ ... af hverju þurfti Aaliyah að deyja svona ung" Furðulegri hlutir hafa nú gerst ... nei! |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||
Hlekkir |