5
Oh, wie die zeit fliegt
Wenn mann in Deutschland ist, dann muss mann deutsch sprechen.
Já, vefleiðarinn var að átta sig á því að hann er að fara á Derricks slóðir í München. Ætli Horst Tappert og Fritz Wepper verði á vappinu að handtaka breskar bullur.
Prosit (skál)
posted by ellinn at fimmtudagur, júní 15, 2006 [edit]
Ótrúlegir hlutir að gerast Ísland vann Svíþjóð í handknattleik, sem meira að segja skipti máli 32 - 28. Stórglæsilegur árangur þessi fyrri leikur í umspili fyrir HM 2007 í þýskalandi. Þetta var fyrri leikurinn af tveimur og mikið verk óunnið.
Seinni leikurinn verður nú sautjánda júní, það er eins og handknattleikssambandið,
HSÍ, hafi ekki heyrt um jinx, sem og auglýsingastofan sem þeir skipta við. "Svíagrýlan dauð fjölmennum í Laugardalshöll". Það er greinilegt á þessu að handknattleikssambandið hefur engan hug á að komast á HM, þar sem þeir jinx-uðu leikinn svona rosalega.
7
posted by ellinn at þriðjudagur, júní 13, 2006 [edit]
Niðurtalningin er formlega hafin!
Það eru fimmtán dagar, já aðeins fimmtán dagar í Þýskalandsreisu, á HM.
15
posted by ellinn at mánudagur, júní 05, 2006 [edit]