Já verðlaun fimmtánþúsundasta gestsins eru pioneer hátalarar að takmörkuðu vali.
posted by ellinn at föstudagur, janúar 26, 2007 [edit]
Vefleiðarinn hefur snúið aftur til samfélags siðmenntaðra. Afhent var PY978 heil á höldnu. Tilfinningin að vera fullgildur þjóðfélagsþegn er unaðsleg.
Nú getur maður lagt sportsternum
posted by ellinn at fimmtudagur, janúar 18, 2007 [edit]
Magni og Eyrún eru skilin skiptum og heimili Marinó litla brostið. Það var eins og síðustu viku að þau hjónaleysi voru í vandræðum með að velja sófa í íbúðina og nú eru þau skilin.
Sé fyrir mér nýjan raunveruleikaþátt. Rockstarbachelorinn, þar sem fyrrum kvenkeppendur Rock-star koma saman og reyna að finna ástina. Magni verður bachelorinn og kempur eins og Jill snúa aftur sigurreifar.
Nú er bara að finna símann hjá Dave Navarro og "pitcha" hugmyndina
posted by ellinn at mánudagur, janúar 08, 2007 [edit]
þð er all langt síðan maður hefur komið að tölvu ölvaður. Brúðkaupið var glæsilegt, veislan var að sama skapi glæsilegt, já,
Til hamingju árni og steinunn, ef kvöldið í kvöld er vísir á framtíð ykkar þá er hún björt ...
posted by ellinn at sunnudagur, janúar 07, 2007 [edit]
Það er runnið upp 2007, hreinasta snilld. Kosningar væntanlegar, væntanlegur nýr seðlabankastjóri og það á að endurútgefa Barbapabba.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir liðið
posted by ellinn at mánudagur, janúar 01, 2007 [edit]