29.4.04
28.4.04
Harald Hirschsprung var merkur maður, sonur vindlagerðarmanns, sem vildi að sonur sinn héldi hefðinn áfram. Haraldur var ekki á því og lagði stund á medisín. Hann fæddist í slésvíkurholtsetalandi þegar það var undir danskri stjórn. Gerði fjölda rannsókna og lýsti öllum andskotanum.
Ef þú hefur áhuga á sagnfræði læknavísindanna smelltu þá á skírendur hér til hliðar. 27.4.04
"nei, ég fer nú varla að skora enn eitt sigurmarkið á Old Trafford" sagði Murphy, D (13) við sjálfan sig síðast liðinn laugardag. Hann átti eftir að sjá eftir þeim orðum, því erfitt er að kyngja slíkum yfirlýsingum ef þær ganga ekki eftir. Fékk hann líka skömm í hattinn frá liðsfélögum , sínum fyrir vikið. "ég er Murphy,D ég get ekki skorað" etc. Fékk drengur að heyra eftir leik, í stríðnislegum tón frá knattspyrnustjóranum, aðdáendum. Ekkki fék hann frið þegar heim kom. Hringdi móðir hans í hann og skammaði hann fyrir að gera eitthvað sem hann ætlaði sér ekki.
Murphy, D þú ættir að skammast þín fyrir að skora gegn júnæted. PS. You´ll never walk alone 26.4.04
Það er komið sumar:
In the summertime When the weather is high You can stretch right up An' touch the sky When the weather's fine You got women, you got women on your mind Have a drink, have a drive Go out an' see what you can find If her daddie's rich Take her out for a meal If her daddie's poor Just do as you feel Speed along the lane Do a ton, or a ton an' twenty five When the sun goes down You can make it, make it good in a lay-by We're not grey poeple We're not dirty, we're not mean We love everybody but we Do as we please When the weather's fine We go fishing, or go swimming in the sea We're always happy Life's for living, yeah, that's our philosophy When the winter's here Yeah, it's party time Bring a bottle, wear your bright clothes It'll soon be summertime And we'll sing again We'll go driving, or mayby we'll settle down If she's rich, if she's nice Bring your friends, an' we'll all go into town
það er ekkert eins skemmtilegt og reggei rappstílinn, það er hrein unun að hlýða á rímur Shaggy's, Shabba Ranks og Sean Paul. Það endurreisir trú manns á mannkyninu. Nei!
Þeir aðilar sem áður eru til nefndir eru miklir boðberar innan tónlistarheimsins, frumkvöðlar og hafa hladið uppi merkjum reggei rappstílsins í stöðugri útrás þess. En þessir menn væru á flæðiskeri staddir í dag ef ekki hefði verið fyrir starf plötusnúðarins Chaka Demus. Samstarf hans við hljómseitina the pliers skóp þann jarðveg sem nærði tónlistarsköðun Shaggy, Seans og Shabba. Heyrast áhrif frá Chaka í flestum laga þeirra. Má þar telja til lög eins og Tease me, Sweeet Jamaica og Bogle Dance, sem greyptu sig inn í undirmeðvitund heillar þjóðar, þ.e. jamaíka. Næst þegar þið heyrið lög Sean Pauls og félaga hans hvetur Vefleiðarinn ykkur til að minnast Chaka Demus og lúta höfði með lotningu. 25.4.04
imdb er ein af snilldar síðum internetsins, hef lengi leitað að hlitstæðri tónlistarsíðu, hef hana nú fundið eftir ábendingu kjarnans. Er það síðan allmusic. Glæstur vefur! 24.4.04
Lykilorð að pósthólfum, heimasvæðum, ýmsum notendareikningum, nýtast til að verja okkur, að aðrir séu ekki að nýta sér eða misnota hlutina sem eru á manns nafni. Það eru semsagt tveir hlutir sem maður þarf að muna, það er notendanafn og lykilorð. Nú hefur maður rekist á það að mjög notar maður sama lykilorðið svo að hlutirnir verði ekki of flóknir. Varað er við þessu og er aþð réttmætt. Tók eftir því um daginn að það margir sem nota sömu lykilorðin og aðrir. Þarf maður að breyta lykilorðin að hi svæðinu því það eru slatti margir með lykilorðið ********, hér a´bloggið eru það fjórir pnktar í röð. Á heimabankanum eru það átta punktar. Þessu verður maður að faraa ð breyta. 23.4.04
22.4.04
Mér var tjáð að þetta væri hluti af Google samsærinu, að Google væri að leggja heiminn undir sig.
Hef tekið þá ákvörðun að styðja google, er kominn með emilreikning með 1000MB plássi. Gleðin er ótrúlega mikil. 21.4.04
Held að læknum sé alveg treystandi til að selja ekki sálu sína lyfjafyrirtækjum. Þetta eru vel greindir einstaklingar og er umræðan móðgandi bæði fyrir lyfjafyrirtæki og lækna. Að lyfjafyrirtækin séu nokkurskonar guðfaðir, sem læknaar bukta sig og beygja fyrir og þegar maður er kominn í fjölskylduna, þá sleppur maður ekki fyrr en dauður.
Asnaleg umræða. ps. Bestir 19.4.04
Bræðurnir og internetiðÞað var úthaf sem skildi þá að bræðurna, var annar í námi en sá eldri var orðinn ráðsettur og giftur mektarmaður og heldriborgar í samfélaginu. Þrátt fyrir úthafið, auðnina sem skildi þá að voru þeir bræðurnir í reglulegum samskiptum um internetið, gegnum tilstuðlan góðs félaga þeirra og vinar Vilhjálmi Hliðs. Eitt sinnið er þeir ræddust við sótti mikinn leiða eldri bróðurinn, hryggði það þann yngri mjög. En fljótt lyftist brúnin á litla, því fyrirmynd hans í öllum málum var að taka gleði sína á ný. Leysti hann frá skjóðunni um leyndarmál sitt, nýtt hann sér enn á ný tækni vinar bræðranna, hans Vilhjálms. Leitaði hann að fólki með dónaleg nöfn í netsímaskrám erlendra landa. Var þar að finna fólk eins og Effie Piku, Aron Saur, Jeffrie Typpi og svo framvegis. Vakti þetta lukku ennfremur hjá litla. Kom bros á vör bræðra og liðu stundirnar sem hendi var veifað. - endir 17.4.04
Margt er að gerast í teiknimyndaheiminum, það var á tíma sem ekkert var að gerast nýtt, eftir að hætt var að framleiða snilldina sem Ren og Stimpy voru ( hefheyrt að bíómynd sé í framleiðslu með þeim köppum). Síðan spratt Genndy Tartakowski fram í sviðsljósið hann í félagi við Craig McCracken hafa skapað einhverjar bestu teiknimyndaseríur síðari tíma. Rannsóknarstofu Dexters, Stuðboltastelpurnar, Samúræjan Jack.
Heill sé þeim félögum Genndy og Craig 16.4.04
Nú herma fregnir að Jesú hafi fæðst á aðfangadag [skemmtilegar svona tilviljanir, eins og Lou Gehrig dó úr Lou Gehrigs sjúkdómi]. Aðfangadagur er eins og fólk flest þekkir 24. des, alveg óháð því hvaða vikudagur það svo sem var. Sömu fregnir herma að Jesú hafi riðið inn í Jerúsalem á Pálmasunnudag og handtekinn á fimmtudegi, krossfestur á föstudegi og reis upp frá dauðum næsta sunnudag. Páskahátíðin byggist á þessum vikudögum, en jólin mánaðardegi. Væri ekki réttara að hafa þessa hátíðisdaga á réttum tíma, það gæti skeikað mánuðum. Það yrði líka meiri spenna í kringum páskana, verða margir frídagað eða lendir þetta allt upp á helgi. 15.4.04
Eg man jötna
ár um borna þá er forðum mig fædda höfðu. Níu man eg heima, níu í viði, mjötvið mæran fyr mold neðan. Það er margt sem maður nú man 14.4.04
Wurth hefur með einsdæmum góðan smekk á kvenfólki, eins og sést á öllum vandaðri verkstæðum, hvar dagatöl Wurth hanga. Þekki til Wurth dagatalanna frá 2001, nammi namm. Hafa þeir löngum nýtt sér þýska framleiðslu, sérstaklega Heidi Klum. Dagatalið 2002 var á Klúmarans, en tekið var brasilíska afbrigðið af þýskri fegurð og Raquel Zimmermann skartað. Mælt er með að leggja leið sína í Wurth á Bíldshöfðann og fá eintak meðan birgðir endast. 10.4.04
Engin þynnka, er það vel.
Þynnka er undarlegt fyrirbæri og hefur margar birtingarmyndir. Hægt er að vakna ónýtur, það ónýtur að líkaminn er ófær um einföldustu störf, þjáningin er of mikil. Hægt er að vakna óþunnur í góðum fíling og smám saman sokkið í slen þreytu og ómögulegheit. Hægt er að vakna ferskur, ekki neitt að, síðan eins og skotinn sokkið í ástandið sem fyrst er lýst. Hægt er að vakan slenugur og vera slenugur allan daginn, þreyttur en ekki mikið þunnur. Best er að vakna óþunnur. 9.4.04
7.4.04
Á sama augnabliki og Ísland í dag er með alvarlega umræði um jafnrétti kvenna, yfirlýsingar Bjössa um jafnréttislögin sem voru barn síns tíma, nú eins árs gömul(endurnýjuð). Þá er nýja pródúseraða stelpnabandið kynnt. Tónlistarhemurinn hefur lengi lifað á pródúseruðum böndum, sem lifa á endurgerðum og eða stöðluðum formúlum til ómeðvitaðs pöpulsins. Vonandi að Jóhanna og skjátan með henni í degi Íslands séu svona innilega kaldhæðnar. 6.4.04
4.4.04
Enn eitt goðið og tónlistarsnillingurinn er fallinn í fen fíkninnar, hvurn hefði grunað að hin íðilfagra, söngelskandi, tónlistargyðja, fremst músa Appolló, hún Kelly Osborne væri fíkill. hín fíkin í morfínlík verkalyf. Gott er fyrir okkur öll sem njótum tónlistar hennar að hún er komin í meðferð, sem tryggir að hún mun lifa södd lífadaga og færa okkur tónsmíðar sínar fram eftir 21. öldinni.
Takk! takk! 3.4.04
Þynnkuvarnir er hlutur sem taka ber alvarlega og vinna vel í. Eftir vel heppnaða og mikla ölvun er lykilatriði æti, best er skyndibita drasl. Er snæðingurinn hjá BSÍ ein af stærstu kanónunum. Daginn eftir gerir þynnkuboltinn góða hluti og deginum er borgið!
Búinn að taka frá 21. ágúst. Fá Þorgeir og Helga bestu hamingjuóskir. Passa mig á því að vera ekki eins á perunni og í síðasta brúðkaupi. Þá var maður svartur. Svertan er ekki langt frá manni allnokkur ölvun í gær og þynnka dauðans í kjölfarið, þrátt fyrir að þynnkuvarnar prótókolnum hafi verið fylgt strangt eftir. "cold sweat as I lie in my bed" 1.4.04
Í þýskalandi nasismans eru tvær konur að ræða saman.
1: Það er undursamlegt hvað börn yðar eru alltaf í skjannavhítum fötum. 2: Þakka yður frú mín góð! Ég þakka það þvottaefninu sem ég uppgötvaði um daginn! 1: Er það nokkuð Ariel Ultra frú mín góð! 2: Nei, ekki svo. Það heitir Ariel Sharon |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Hlekkir |