30.4.05
nú er vefleiðarans best að lifa því hans er batnandi. Reif úr myrkviðum bílskúrsins Scott USA expert racer-inn og sl. tvo daga brunað á barónsstíginn. Jamm að lokum hver hreppir næstu verðlaun! 26.4.05
24.4.05
Stundum langar mann bara til að öskra ... en það má víst ekki. Það þykir sér í lagi slæmt þegar er fullt tungl. Að öðru leiti eru enn um fjórtán dagar af staðfestri þjáningu. Ef maður er heppinn fær maður að þjást lengur! 20.4.05
Nú verður maður ríkur ... það er bara að sækja um einkaleyfið! Já, þau eru óþolandi eyrnahárin. Sama hve reynt er að sneyða þau ogklippa þá koma þau alltaf aftur. Hugmyndin er einföld, að vaxa eyrun. Það er víst sárt en mun skila betri og tilætlaðri árangri. Ein hugmynd var að kalla það "ear-wax". Nú verður Vefleiðarinn ríkur. 18.4.05
Það er kominn mánudagur tæknilega séð ... Dagur slátrunar. Dement kona með ónæmissjúkdóm ... ég bara veit að það verður keisið! 15.4.05
Hræddist sjálfan mig fyrr í kvöld ... var kominn með bindi um höfuðið í stíl við Rambó og sat fyrir mönnum ... skaut þeim skelk í bringu. Naut þess mjög ...róaðist svo niður og náði tveimuroghálfum tíma í lestri! Ps. "They drew first blood sir! They drew first blood!!!" 14.4.05
12.4.05
11.4.05
The race is back on! Já, enn er keppnin komin í algleyminginn, menn kitlar grimmt í fingurgómana að verða sexþúsundasti gesturinn og verðlauninn verða enn veglegri! Ennþá er tekið við framlögum! Ps. ef maður útskrifast nú úr þessum háskóla verður maðurinn að hætta vefleiðarastarfseminni
Í lestrargeðveikinni síðastliðinn mánuð læddi sér inn einn hamingju dagur. Já, Vefleiðarinn lagði leið sína yfir holtið í fylgd, Lundans, eins fræknasta sonar Vestmannaeyja. Rifjuð var upp saga sú er Agnarbj gekk þessa leið og fannst sem hann hefði Everst tind lagt að fótum sér. Sólin skein það var eilítil gola en í allastaði yndislegt veður sérí lagi miðað við árstíma. Leifur landafundamaður heilsaði okkur kumpánlega og lýsti yfir fyrirlitningu á mannlíkum skúlptúrum sem reyna í sífellu að yfirtaka völdin á torginu framan við Hallgrímskirkju. Mátti hann ekki mikið vera að því að spjalla því verja varð hann stall sinn og hásæti! Gengið var rakleitt niður skólavörðustíginn og skraddaraverslun Indriða heimsótt. Indriði tók vel á móti og ræddi um daginn og veginn ... sem von er á. Eftir hið ágætasta spjall var fjárfest í Indriða skyrtu og tveimur Indriða bindum. Íklæddur Indriða skyrtu var í svartnætti prófstressins og kvíðans ljósargeisli fundinn og gleði ríkti í einn dag. Nú er ég klæddur og kominn á ról Kristur Jesús veri mitt skjól Í guðsóttanum gef þú mér að gang'í dag svo líki þér 6.4.05
Búinn að finna símann. Vel þakka öllum þeim sem í leitinni tóku þátt Tómasi Helga í Svíþjóð, Boga í Ástralalíu! Síminn fannst í bílnum, hann lét vel af sér en var kaldur og hrakinn, hafði verið án vökva og matar í 32 tíma. Annars er þetta merkilegur sími hefur hann dugað nú í að verða á þriðja ár sem er ágætis nýting á svona grip miðað við fyrri reynslu. Það er hætt að framleiða týpuna, er það sennilegast vegna endingarinnar. Man enn þann dag í dag þegar síminn var keyptur efasemdarmenn sögðu þetta er geðveiki, þetta GSM á ekki eftir að ná vinsældum freakr en internetið ... en sjá Síminn er öflugrin en aldrei fyrr. Ferfalt húrra fyrir Símanum mínum. Ps. Það er kominn klósettpappír aftur á Baró Pps. Ferfalt húrra fyrir klósettpappírnum!
Einhvernvegin án þess þó að vita hvernig þá er síminn minn ekki hvar hann ætti að vera, reyndar veit ég ei hvar sá staður er. Veit ekki einu sinni hvar minn notaði símann seinast! Hefur þú séð nokia 6510 síma vefleiðarans?!? 4.4.05
NESTLÉ heimurinn. Já, það er staðreynd að NESTLÉ er að leggja undir sig súkklaðiheiminn. Það er orðið æ sýnilegra hvað heimsmenningin er að verða eintóna. Það er allt sama manneskjan í tónlistinn er Beoncey í destiny og einnig sóló, hún er einnig að leggja undir sig leiklistarheiminn, auk þessa kemur hún fram a´tískusýningum og er cover stúlka margar frægra blaða. Sama má segja um Britney. Íþrótta strumpar eru að gera þetta líka má þar helst nefna Beckham hommann og Ronaldhino rottuna. En hvernig tengist það NESTLÉ. Jú, þeir eru hluti af þessu illa veldi, “The Empire” svo maður taki Star Wars samlíkingu. Það er jú við hæfi því George Lucas er einn frumkvöðull þessarar eintóna framleiðslumenningu. Aftur NESTLÉ þeir hafa með einhverjum ráðum yfirtekið marga máttarstólpa súkklaðiheimsins, þeir taka ekki vörumerkið af markaði heldur halda framleiðslu hennar áfram með einni lykilbreytingu þó. Þeir skipta út súkklaðinu og setja NESTLÉsúkklaðið í staðinn. Má nefna hvernig þeir hafa eyðilagt framleiðslu Macintosh. Quality Street hefur misst allt sitt gæða, “Quality” Lion Bar-ið góða er orðið vont og þeir meira að segja nauðguðu ljóninu, NESTLÉ-kónarnir. Eintóna er það, já sama verkið en með nýju nafni. Neytandanum er haldið í blekkingarvefnum hann sér nöfn sem hann þekkir en varan er ekki sú sama. Það er ekki lengur neitt val þetta er allt sama súkklaðið. Get ekki hugsað þá hugsun til enda ef að NESTLÉ yfirtekur Cadbury´s sem er eðal súkklaði. Það myndi nú kalla á uppreisn ef Nói yrði næst ekkert nóasiríus súkklaði bara NESTLÉ í nýjum nóa pakkningum. Galaxy verður ekki mikið silki þegar NESTLÉ er búið að koma klónum sínum þar í. Es. Súkkulaði er skrifað súkklaði hér upp á stílinn vonandi að engum finnist sú stafsetning móðgandi. Vefleiðarinn er smeykur við “pylsu”fasistana. 1.4.05
Geri fastlega ráð fyrir að kollegi minn bjarnason, a sé að tala um Leyden-Möbius heilkennið. Frekar en Möbius heilkenni I eða II, hvar í því fyrrnefnda er lömun á n. oculomotorius ásamt meðfylgjandi mígreni en því síðarnefnda sem er gríðarlega sjaldgæft og er meðfædd lömun á m. rectus externus og mm. fasciales, vanalega beggja vegna (bilateralt) ásamt lömun á sjöttu og sjöundu (heila)taugum Þess má einnig geta að Möbius var þýskur taugalæknir, hann fæddist í Leipzig þann 24. janúar og lést þar 1907. Leið hans lá ekki beint í læknavísindin. Doktoreraði hann fyrst í heimsspeki en reyndi síðar fyrir sér í læknisfræðum með gríðarlega góðum árangri. Hann starfaði um hríð í hernum og varð "Oberstabsarzt". Hann stofnaði síðar einkaklíník í Leipzig. Svo þræði verði haldið þá er komið að Leyden-Möbius heilkenninu: En það lýsir sér svo á okkar ástkæra og ylhýra ... A musculare dystrophy involving first either the pelvic (Leyden-Möbius) or, less commonly, the shoulder girdle (Erb’s type). Occasionally there is pseudohypertrophy with wasting of the calves, and facial involvement. Onset is usually in childhood at the age of 10 to 12 years, but it may appear in adult or middle-age persons. Occurs in both sexes. The disorder is transmitted as an autosomal recessive trait, but sporadic cases also occur. |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||
Hlekkir |