Fyrsti sigur Íslenska landsliðsins í karlakanttspyrnu ég veit ekki hve lengi og hvílík hörmung. Eitt skot á mark og sigur 2-1. Tvöhundruðprósent nýting markskota hlýtur að teljast gott, ef reiknað er með höfðatölunni vann Ísland leikinn 307 - -7.
Þetta er sennilegast ósanngjarnasta tap hjá Nírum frá upphafi. Kannski er þetta karakter sigurvegarans, þótt menn séu ekki að standa sig þá ná þeir að knýja fram hagstæð úrslit.
Burtséð frá öllu þessu, persónudýrkuninni á Eiðinn, þegar Tólfan hætti að kyrja Áfram Ísland og tók Áfram Eiður í staðinn það sem eftir lifði leikjar.
Burtséð frá þessu öllu þá sé Eyó að sér og hefur ekki Kára Árnason í byrjunarliðinu, það þarf ekki að útskýra frekar.
posted by ellinn at fimmtudagur, september 13, 2007 [edit]
Góður bissness.
Jói útherji var með leik, kaupið landsliðstreyju vinnið miða á landsleik íslendinga og n-íra.
Landsliðstreyja fimmþúsund kall, landsleiksmiði fimmþúsundogfimmhundruð kall sinnum tveir samasem mínus sexþúsund kall, þannig hefur vefleiðarinn grætt sexKall.
Þar sannast hið fornkveðna júvgotttúspendmonnítúmeikmonní
Magnaður andskoti
posted by ellinn at miðvikudagur, september 12, 2007 [edit]
Vefleiðaranum hefndist að taka skosku stúkuna á landsleikin að sjá Iniesta skora jöfnunarmark spánverja í stað þess að standa inni í hlýrri laugardalshöllinni og hlusta á fyrsta hálftíma hins síunga Chris Cornells, sem var vel tanaður og lága fituprósentu.
Stórglæsilegir tónleikar og mjög gott rokk
posted by ellinn at sunnudagur, september 09, 2007 [edit]
Nöfn eins og Horst Tappert, Fritz Wepper og Willie Schäfer eru greypt í undirmeðvitund íslensku þjóðarinnar. Eru þetta góðkunningjar úr Lögregluliði Münchenar. En Reginald von Ravenhorst hefur ekki hlotið sinn senss í vitund hinnnar íslensku þjóðar þó að hann sé jafn þekktur og Horst Tappert á sínum tíma. Hann hefur komið mörgum morðingjanum bak við lás og slá.
Reginald fæddist fyrsta júní 1991, sonur Yogi og Otti. Hannn lagði snemma fyrir sig leiklistan og opnuðst dyr frægðarinnar fyrir honum 1994 þegar hann landaði aðalhlutverki í nýjum lögregluþætti
Kommissar Rex (lögregluhundurinn Rex)
posted by ellinn at laugardagur, september 08, 2007 [edit]
Þóttist sjá potential hjá Klaxons á Airwaves í fyrra, var samt ekki alveg að átta mig á þeim. En hlustun á plötuna hefur staðfest að þeir eru nokk góðir, enda fengu þeir mercury tónlistarverðlaunin.
posted by ellinn at fimmtudagur, september 06, 2007 [edit]
Hvað er að gerast í heimi hér, þegar virt austurrísk kaffi og veitingahús leggja upp laupana á Íslandi.
Hvar á maður að skreppa í meter nú til dags ...
posted by ellinn at þriðjudagur, september 04, 2007 [edit]