30.9.04
#1 nýjasta tónverk Nick Cave plöturnar abbatoir blues og lyre of orpheus eru þvílík meistarverk. Er reyndar litaður af mikilli aðdáun á ceivnum, þetta er snilld engu að síður.
#2 takk fyrir ammælisgjöfina stóribróðir nú get ég látið alla karlmenn þrá mig og brætt allar konur. Ekki ónýtt það. Vefleiðarinn verður brátt súperflört/dúndurdaðrari. 29.9.04
28.9.04
27.9.04
Get ekki lifað lengur í lyginni. Vefleiðarinn á sér þrefallt líferni, á nóttunni ritar hann vefleiðingar þessar í vefheimum, á daginn lærir hann til læknis á Íslandi, á kvöldinn er hann dansari í USA kallar sig hr Federline og er að verða faðir nú í þriðja sinnið.
24.9.04
23.9.04
Ég var einu sinni nörd var yfirskrift á frægum einleik, sem sýndur hefur verið víða.
Nörd er ekki náhvítur gleraugnaglámur framan við tölvuskráinn sem talar í frösum eins og input ... field ... conversation ... error ... system or input error ... (a) abort, (r)etry, (f)ail ... Nörd er einstaklingur sem skarar fram úr á einu sviði oft á kostnað félagslegrar færni og þroska. FM-hnakki uppfyllir þessi skilyrði, hann er í raun FM-nörd, það ætti að segja fótboltaNÖRD í stað f-bulla [ofbeldi eru ekki heilbrigð samskipti]. Nýtt slagorð sameinuðuþjóðanna öll nörd heims sameinist ... 21.9.04
Tell me, tell me!
Það er gott að það eru til skýringar við öllu, skv. höfðatölu þá á Ísland ekki að geta alið af sér afburða ienstaklinga, þýðið er of lítið þannig að líkurnar fyrir yfirburða einstaklingi eru eru óhugnanlega smáar. Það er kannski að fábreytileiki erfðaefnisins ýti frekar undir stökkbreytingu til yfirburða. Sama tölfræði á kannski við þegar er litið til Eurovision og árangurs, en það eru alltaf aðrar skýringar sem kemur að tell me sem var eitt framlag Íslendinga í samevrópsku söngvakeppnina, á þessum tíma var vitað að engum hafði tekist að semja aðra eins snilld og sigurinn blasti við. En svo fór nú ekki. Já, það var ekki lagið ekki performansin heldur pilsið hans Einars Ágústs sem eyðilagði vonir lýðveldisins og möguleika þess á sigri í júróvisjón. 15.9.04
Líkt og á við um önnur bóluefni skal fresta ónæmisaðgerð hjá einstaklingum sem eru bráðveikir og með hita. Minni háttar sýking er hins vegar ekki frábending frá ónæmisaðgerð. Bóluefnið skal ekki gefa einstaklingum sem hafa þekkt ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum bóluefnisins eða þeim sem hafa sýnt ofnæmisviðbrögð eftir fyrri gjöf Havrix. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins.
Varúð: Mögulegt er að einstaklingur hafi fengið lifrarbólgu A sýkingu og ónæmisaðgerðin fari fram á meðan á meðgöngutímanum stendur. Ekki er vitað hvort Havrix kemur í veg fyrir lifrarbólgu A í slíkum tilfellum. Hjá sjúklingum í blóðskilun og einstaklingum með truflun í ónæmiskerfi, næst e.t.v. ekki fullnægjandi mótefnatíter eftir einn skammt af bóluefninu og gætu þessir einstaklingar þurft á aukaskömmtum að halda. Eins og á við um öll bóluefni til innspýtingar, skal viðeigandi læknishjálp og tækjabúnaður vera aðgengilegur ef sjaldgæf bráðaofnæmisviðbrögð eiga sér stað í kjölfar gjafar bóluefnisins.Havrix má gefa HIV sýktum einstaklingum.Þó að blóðvatnspróf fyrir lifrarbólgu A séu jákvæð er það ekki frábending frá ónæmisaðgerð. 13.9.04
... and the beef cutlet walks after the counter and beats the hell out of my coffee ... and the coffee wasn't strong enough to defend itself...
Hvenær kemur meistari Tom Waits til Íslands??? 9.9.04
JárnDevlin veitir manni lausn, ekki aflausn, en lausn kemur því næst. Járn er lífsnauðsynlegt, í súrefnisflutningi um líkamann, við sjálfa frumuöndunina í orkukornum/hvatberum frumanna, sem það gegnir mikilvægu hlutverki í virkni ensíma frumanna. Járn er á ónuðu formi tvígilt eða þrígilt, ferrous eða ferric. Í súru umhverfi hugnast því tvígilda, ferrous, formið en við hlutlaust sýrustig er það þrígilt, ferric. Á leið sinni um meltingarveginn frásogast járn best bundið í lífræn efnasambönd og þá sem prótóporphyrin IX, betur þekkt sem hem, já hemið í hemóglóbíni það er blóðrauðinn sjálfur. Járn frásogast einnig sem hreint frumefni og þá á jónuðu formi [uppleyst í lausn] ferrous járn frásogast mun betur en hið þrígilda ferric járn. Þar sem blóðið er hlutlaust og járn í miklum mæli sér í lagi þrígilt, myndar langar fjölliður í tengslum við vatnssameindir sem falla þá út í vefi líkamans, því nýtir líkaminn sér bindiprótein, sem kallst transferrín því það flytur járnið [bakteríur geta ekki nýtt sér járn sem bundið er transferríni]. Transferrín flytur aðeins járn sem er á ferric [þrígildu] formi. Ekki er nógu vel þekkt hvaða oxunar/afoxunarhvörf líkaminn nýtir sér til að umbreyta ferric formi frásogaða járnsins yfir í þrígilt ástand. Bestu þakkir kann vefleiðarinn Devlin sínum sem samdi jú bestu bók í heimi 8.9.04
Eftir módernushneykslið sem skók vefheiminn fyrir nokkrum mánuðum. Þegar tugþúsund heimsóknum var stolið undan nefi vefleiðarans, hefur vefleiðarinn borist í bökkum. Er enn ekki komið yfir þúsundustu heimsóknina.
Því er tilvalið til að styðja einmenninginn í baráttunni gegn auðvaldinu og renna í gegnum eldri færslur. Einnig má leggja inn á bankareikning, þið þekkið öll númerið. 7.9.04
Bloggarar á folk.is virðist við fyrstu sín mikið koma úr Verzló, hvar hnakkar sækja mikinn í vað vera. Góður staður fyrir tjokkó. Það verður þó að gæta þess gaum að mikið af slíku liði fer einnig og sækir í MH. Er sennilegast þaðan kominn þessi "pseudo"-rígur sem á milli skólanna ríkir sem er hálfkæringur miðað við rótgróið hatrið sem milli MR og verzló ríkir.
í kvöld var A-teymið stofnað. A-teymið sem útleggst á engilsaxnesku the A-Team lýtur andlegrar og veraldlegrar leiðsagnar Herra Tés, á erlendri tungu Mr. T.
Það er hægt að gera allt ef viljinn er fyrir hendi. 6.9.04
3.9.04
Kínverska letrið Koppí peistast greinilega ekki sbr. fyrri færslu [spurningamerkin]
"People who achieve execellence in sport, have to live with risk of injury ..." - Beiersdorf 2.9.04
Hlakka til að bjóða lítil kríli velkomin í deildina á morgun. Sennilegast í seinasta skiptið sem maður kemur því við.
Tók lítinn fjórðung af Íslandi heim úr útlegðinni frá Akureyri. Keyrt á Ísafjörð þaðan á Patró, þar kemst maður af því að maður gleymdi hjólinu í veiðigræjuna og ekki hægt að nálgast slíka græju þar. Enn á það ekki fyrir manni að liggja að drepa fiskinn í vötnum þessa heims. Frá Patró var sest undir stýri og lagt af stað í höfuðborg óttans. Gekk sú keyrsla sem hinar áfallalaust fyrir sig. Að lokum þá er góð vísbending til ökuþóra þessa lands. Ef þú ert að keyra einn í makindum á þjóðvegum þessa lands og þú sérð í fjarska bíl sækja á þig og afturstuðarinn verður smeykur komandi heilsu sína. Þá er réttast að hleypa þeim bíl fram úr. Viðkomandi er að keyra hraðar en þú... það þarf engan einstein til að sjá slíkt út. |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||
Hlekkir |