Jam Band Fussumsvei. Já, og ef smellt er á fussumsvei hér að framan með vinstri músarhnappi þá má kynnast djammbandinu nánar, en auðkenni sveitarinnar er einstök gleði. posted by ellinn at þriðjudagur, ágúst 28, 2007[edit]
Lee Hazlewood er allur. Skv. mogganum varð krabbamein honum að aldurtila, hann kvaddi með útgáfu plötunnar Cake or Death í fyrra.
Man fyrst eftir að hafa heyrt í Lee Hazlewood sennilegast sumarið 1996. Þá var hlustað á morgunþátt Súra mannsins, Árna sem sá um þáttinn Sýrðan Rjóma. Spilaði hann alltaf eitt lag með Nancy Sinatra á hverjum morgni. Þar kviknaði áhuginn á Lee en því var ekki fylgt eftir fyrr en nokkrum árum seinna vegna lélegs aðgengis að tónlist meistarans.
Vel heppnaður kvöldverður, svo maður segi sjálfur frá. Eina sem vantaði var að fleiri góðvinir hefði mátt vera lausir frá skuldbindingum einkum vinnu. Það var nú ekki verið að punta við margrétta máltíð heldur einrétta, seinast þegar maður bauð í þrírétta þa´kom í ljós að salatið sem var borið með aðalréttinum var þekktur forrétur í sjálfu sér. Í tilefni verslunarmannahleegar var klassískt grill þema. meðlæti einfalt salat, vissulega var svindlað með að kaupa tilbúið blandað salat sem var kryddað með fínlega skornum rauðlauk, sveppum, papriku, hnetum, með klassískri dressingu, balsamik edik, ólívuolía kryddað með salti og pipar. Með þessu var hvítlauksbrauð, bakaðar kartöflur og blandað grænmeti, sósur, tvær með sýrðum rjóma og matreiðslurjóma í grunninn annars með sinnepi salti pipar og hlynssýrópi og hinsvegar klassísk hvítlaukssósa, það er viðbættum hvítlauk í grunnsosuna. Aðallinn var svo grillið sem er í anda helgarinnar, grillspjót með innannautalæri og grænmeti, kúrbít, papriku; rauðri og gulri, rauðlauk, sveppum, túmat. Því til viðbótar rifjur svína, með BBQ sósu aðlagaðri að smekk undirritaðs. Það munar öllu að sjóða rifjurnar í vatni krydduðu með pipri, rósamaríni, salti og lárviðarlaufi og ekki myndi skaða að bæta við nokkrum negulnöglum. Ekki má gleyma lyklinun að góðri málatíð og það er að setja stóran hluta af sálinni í eldamennskuna. Skál fyrir góðum vinum, góðum drykk, góðum mat og farsælli framtíð