Þegar kólnar í veðri og vindurinn hvín er gott að eiga góða úlpu.
Á Akureyri hefur verið miið frost undanfarið, stilla og frost mjög fallegt veður.
Nú er skýjaþykkni mikið með ofankomu og samhliða því hlýnaði nokkuð í veðri.
Hef tekið eftir því að oftar en ekki hlýnar eitthvað í veðri þegar tekur að snjóa. En oft er eins og kólni samfara rigningu.
Nú er skýringin fundin. Snjókorn eru stærri en vatnsdroparnir, einnig sem þau falla hægar þannig að þau verða fyrir meiri núningskrafti. Núningur þýðir viðnám, sem jafngildir varmamyndun. Þess vegna hlýnar frekar þegar snjóar en rignir þar sem regndroparnir, verða fyir minni núning við andrúmsloftið.
posted by ellinn at mánudagur, mars 27, 2006 [edit]
Það er skemmtilegt hvað það er spennandi að gera hversdagslega hluti íklæddur leðurhönskum. Hlutirnir verða meira spennandi, að keyra bíl með leðurhanska, þá er iens og maður sé kominn í spennumynd, manni er oftar litið í baksýnisspegilinn, er rauða hondan að elta mann. Það að stimpla sig í vinnuna hættir að vera hversdagslegt, það verður mystískara.
Leðurhanskar bæta kryddi í tilveru
posted by ellinn at fimmtudagur, mars 23, 2006 [edit]
Nú er tölfræðin aftur með manni.
posted by ellinn at mánudagur, mars 13, 2006 [edit]
1003
#1 Master salad eða
Salad Master#2 Það er eitthvað við tónlist Neil Diamond
#3 Trúi því ekki að það er sellerí í djúpfrystagrænmetinu mínu
posted by ellinn at fimmtudagur, mars 09, 2006 [edit]
Þeim fjórmenningum Birni, Benny, Agnethu og Annefrid margt meira til listar lagt ena ð gera góða músík. Þau gera afbragðsmat,
síldar sérílagi. Eins og má sjá.
posted by ellinn at miðvikudagur, mars 01, 2006 [edit]