Loksins get ég glaðst sem liverpoolari
posted by ellinn at laugardagur, október 29, 2005 [edit]
Það er kosturinn við svartar buxur að ekki sést þegar maður hefur migið eða skitið á sig ... jeeee!
posted by ellinn at fimmtudagur, október 27, 2005 [edit]
Líðan RTG getur ekki verið góð á þessari stundu. Hafi hann séð sama og undirritaður "Stakir jakkar og
gallabuxur" Dressmann
Ps. Hvaða lag er þetta í auglýsingunni
posted by ellinn at miðvikudagur, október 26, 2005 [edit]
"
shotgun" þetta er bara svona einfalt. Nema ég set þann fyrirvara að allir séu í sjónlínu við farartækið.
posted by ellinn at miðvikudagur, október 19, 2005 [edit]
Þegar vont er í veðri og vindurinn hvín er gott að eiga góða úlpu, eða fara internetið og drepa tímann. Oft er gaman að taka sér þema eins og rass eða prump jafnvel guð og skrifa url út í loftið og sjá hvað gefur.
http://www.jesusislife.com/
http://www.jesus24-7.com/
http://www.jesusisgay.com/
http://www.jesusgonnabehere.com/
http://www.jesusvsjudas.com/
http://www.jesusistheanswer.com/
Þetta er bara brot af .com og það er til heill heimur af .de, .is, co.uk, .tv, .org, .gov, .edu, .au, .it, .ar ...
... og tíminn þýtur áfram.
posted by ellinn at þriðjudagur, október 18, 2005 [edit]
Pestir böl hins nútíma manns, í fyrndinni dauðadómur nú óþarfa óþægindi. Enda verður umræðan um að lyfjakostnaður vaxi og vaxi og mun fyrr en síðar koma þjóðinni á kné fjárhagslega, kominn til vegna sívaxasndi trúar á efnisheiminn og skyndilausna að allt skuli lækna með töflu einni, sama hvert verðið er. Þetta þarf ekki að vera svona þegar maður hugsar um eðli pestarinnar og þá er hægt að átta sig á hvernig á að meðhöndla þennan kvimleiða gest.
Pestin stafar af upphleðslu "eitur"efna í líkamann og þarf því að hreinsa líkamann og er vökvinn sem best er í það fallinn eimað vígt vatn, íslenska fjallavatnið getur komið í stað þess, en það má ekki geymast í plast eða blýílátum. Auka þarf venjulega vökvainntöku a.m.k. þrefalt.
Annað atriðið er hreinsun hinna illu anda sem í líkamanum búa. Líkt er með veikindaárunum og jólakettinum að þeim er illa við hreina og vel tilhafna einstaklinga, því er ekki síst mikilvægt að liggja í heitu baðvatni a.m.k. klukkutíma og skerpa reglulega á vatninu því það má ekki kólna og má hitastig þess ekki fara niðurundir 35°C. Yfirgefa þá djöflarnir líkamann. Til að koma í veg fyrir að þeir taki sér bólfestu jafn hart og stigið er upp úr baðinu, skal sturta líkamann og íklæðast betri fötunum.
Njótið þessa leiðavísirs að bættri heilsu og félagslegir líðan.
posted by ellinn at mánudagur, október 17, 2005 [edit]
Það er óskiljanlegt að ekki finnst í raftækjaverslunum Íslands brauðrist sem fullnægir þörfum vefleiðarans.
posted by ellinn at þriðjudagur, október 11, 2005 [edit]
aeron komin norður. nú er allt að ske.
posted by ellinn at mánudagur, október 10, 2005 [edit]
Skemmtilegt, hér er staddur maður að tengja mig við stafrænt sjónvarp. Eitthvað pickles er í gangi, hann hringdi til að fá aðstoð og er nú #24.
posted by ellinn at mánudagur, október 03, 2005 [edit]