30.11.01
Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar, Örvar spörvar. 29.11.01
Svik á svik ofan. Guðinn er fallinn. Hann reyndist vera lúsífer en ekki hinn göfgi erkiengill Gabríel. Fowler þú hefur rústað lífum milljóna sem dýrkuðu þig sem guð. Vefleiðarinn getur ekki tjáð sig meira vegna sorgar. 28.11.01
27.11.01
26.11.01
Briana Banks á heiður skilinn. Það að ég minntist á hana í fyrri leiðurum var þess valdandi að þrír eða fjórir hafa vafrað á síðuna í leit að gyðjunni af því tilefni.
25.11.01
Þýða tóna má finna hér. Vefleiðarinn bíður spenntur eftir þessum. Slíkt á ekki að geta klikkað. Ennfremur óskar maður þess á slíkum stundum að búa yfir ADSL tengingu. 23.11.01
Skellið ykkur á spjallvefinn og ræðið nýjustu plötu Britney Spears eða hvað eina sem hugann girnist. 22.11.01
Það er fátt eins heillandi og sjoppuhamborgari. Eru fáir sem kunna jafnvel á slíkum hlutum skil og Staldrið og Aktu Taktu. Er þar eðalsjoppuborgara að fá. Vefleiðarinn mælir með Aktu Taktu borgaranum svona hversdags en Staldurs borgarinn er alveg eðal í þynnku. 21.11.01
Það eru til tvær gerðir fólks, strákar og svo stelpur. Hægt er að flokka þessa hópa niður í góða stráka og stelpur og svo vonda stráka og stelpur.
Vondir strákar sofa hjá góðum stelpum og vondar stelpur sofa hjá vondum strákum. Það er einn hópur sem ekki fær að sofa hjá. Það eru góðu strákarnir. Til er undnantekning. Góðir strákar sem sofa hjá hafa þá á einhvern hátt, skiljanlegan eða óskiljanlegan, lent í sambandi. 20.11.01
Samkeppni. Vefleiðarinnn veit ekki alveg hvernig ber að bregðast við. Kjarninn hefur haft slíkt fyrir sið að útnefna svikara vikunnar. Var svo komið að Vefleiðarinn var svikulasta veran á jarðríki með því að komast tvisvar inn á listann út á eigin verðleika. Greinilega hefur slíkt ekki komið vel við Kjarnann, að eiga ekki metið. Hefur hann því nýtt sér aðstöðu sína svo um munar, með því að útnefna sig svikara vikunnar í annað sinn. Jafnar hann þar með met Vefleiðarans. Ekki veit hann hvernig á að bregðast við slíkum aðförum. Greinilegt er að hér keppa menn ekki á jafnréttisgrundvelli. Eru þessar aðfarir eitthvað sem ekki var hægt að búast við jafnvel frá argasta Ancylostoma duodenale. 19.11.01
Sjónvarpsmarkaðurinn á Íslandi er lítill, kemur þam fram þannig að framboð á sjónvarpsefni er minna en erlendis. Fáum við því ekki nema brot af öllu því sjónvarpsefni sem framleitt er í heiminum. Nú kemur mest megnið af efni íslensku sjónvarpsrásanna frá Bandaríkjunum. í ljósi þess að einungis lítið brot af Bandarísku sjónvarpsmenningunni berst til landsins. Má álykta að hægt sé að sía út það besta sem gerist erlendis. Íslenskt sjónvarp sýnir bestu bandarísku framhaldsþættina og bíómyndir. Í ljósi þessa og alls þess ógrynnis sem framleitt er af sjónvarpsefni í útlandinu og við fáum hingað til lands rjómann af því öllu. Þá er ekki hægt að hrópa húrra yfir bandarískri sjónvarpsmenningu, og eiga þeir nú að vera komnir lengst okkar allra í þeim efnum. 16.11.01
Vefleiðarin hefur séð galla á tilgátu sinni með sársaukaþröskuld mæðra. Þetta gildir ekki til jafns með mömmur. Ungar 16 ára mömmur hafa augljóslega ekki sama háa þröskuld og mömmur komnar sextugsaldur þjakaðar af liðagigt, beinkröm, "hallucis vargus" og vanþakklæti. Er þá sennilegast að í kjölfar mömmu tignarinnar aukist sársaukaþröskuldur mæðra í línulegu sambandi við mömmualdur þeirra.
Annað áhugavert. Samkvæmt fremsta næringarráðgjafa Vefleiðarans er C vítamín í pulsum. Rennir það stoðum undir að enginn veit í raun og veru úr hverju pulsur eru gerðar. Geta pulsur því allt eins verið grænmeti og er það trú Vefleiðarans. Því vonast Vefleiðarinn að grænmetisætur fjölmenni á Bæjarins bestu og fjárfesta í einni með öllu. Pulsur eru jú, alltént grænmeti. 15.11.01
Alltaf gaman að velta sér upp úr tölum og þvíumlíku. Lítið á
Ég fékk aftur 6 úr Fake or Foto próifnu og nú með almennilegri upplausn, hvernig getur á þessu staðið. 14.11.01
Óaðfinnanlegur leikur. Dómgæsla Vefleiðarans var óaðfinnanleg, hlaut hann uppreisn æru, liggur ekki leið til heljar heldur upp til himna. Var haft að orði að nú mætti Dermott Gallacher fara að vara sig.
Vefleiðarinn freistaðist til að taka Fake or Foto prófið sem Arnar bendir á, á síðu sinni. Tókst Vefleiðaranum að skáka þeim meistara með 6 réttum svörum, er það mikið afrek miðað við slæma upplausn á skjá tölvunnar heima. Mun Vefleiðarinn reyna sig aftur á tækjakosti Reiknistofnunar og vonandi verður árangurinn enn betri. Með því kveður Vefleiðarinn og býður góðrar nætur. Þrjár færslur á einum degi, nú man ég ekki en þetta gæti líkast til verið met í sögu Vefleiðarans. JIBBÍÍÍ!!!!
Dauði og djöfull, Vefleiðarinn stefnir til helvítis, fyrst hann neyðist til að dæma aftur í Háskóladeildinn, hér gengur dæmdur maður.
Vefleiðarinn hefur staðið að tveimur markverðum og áháðum rannsóknum og hafa þær leitt í ljós að mömmur hafa almennt hærri sársaukaþröskuld heldur en annað fólk og ennfremur að heimsendir verður sjöunda maí 2005.
Brandara seinustu viku var að finna í DV: Hvað heitir köttur Osama bin Ladens? ... Miltisbrandur Annar í sama anda: Bist du auf laden? ... Nein, ich bin laden 12.11.01
Síðastliðinn miðvikudag tók Vefleiðarinn þátt í Víkingalottós geðveikinni sem reið yfir landsmenn og fjárfesti í einni röð að andvirði ~30 króna. Ekki vitlaus fjarfesting það þar sem vitað var um 30.000.000% arðsemi fjárfestingarinnar. Vefleiðarinn kaupir nú ekki vanalega köttinn í sekknum, þannig að augljóst var frá upphafi að tölurnar sem hann fjarfesti í voru vinningstölurnar, því geta vinningstölurnar sem birtust ekki verið réttar, þar sem engin þeirra, fyrir utan eina, var á lottó miða Vefleiðarans. Greinlegt er að einhver brögð hafa verið í tafli og er slíkt óásættanlegt. 9.11.01
Gras.is á frétt vikunnar. Fær hún að fljóta með í heild sinni. Vona ég Írönum alls hins besta í ljósi fréttanna.
MiðlungspressaHinn sérstæði króatíski þjálfari Írana, Miroslav Blazevic, hefur sett pressu á leikmenn sína á ný fyrir leikina gegn Írum með því að hóta að hengja sig á ný ef þeim tekst ekki að slá Írana út."Ef við klikkum núna þá mun ég hengja mig á markslánni eftir leikinn. Ég vona að fólk muni syrgja mig ef það gerist," sagði hinn eðlilegi Blazevic. Íran og Írland mætast á laugardaginn í Dublin og svo í Íran á fimmtudaginn í leikjum um laust sæti á HM. Blazevic notaði sömu hótanir fyrir leikina gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum og þá vann Íran og því er enginn ástæða til þess að breyta um taktík greinilega. 8.11.01
Vefleiðarinn hefur náð þeim stimpli að geta talist alræmdur. Hefur hann allra manna oftast tekist að vinna sér inn heiðurinn Svikari Vikunnar. Er Vefleiðarinn upp með sér og fullur lotningar. 7.11.01
Í dag var reynslumikill dagur. Vefleiðarinn reyndi það hvernig er að vera úrhrak þjóðfélagsins. í kjölfar glæsilegs sigurs þriðja árs læknisfræðinnar á deildarmóti læknadeildarinnar, lofaði Vefleiðarinn/Managerinn liðsmönnum sínum að ráða skeggvexti vefleiðarans, það er hvernig skegg hans skyldi skorið. Var gengið lengra en lög gerðu ráð fyrir og hár sneitt af helmingi höfuðs. Þannig til fara um höfuðið gekk Vefleiðarinn og fann hvernig þjóðfélagið útskúfaði honum þessa rúmlega fjóru tíma sem greiðslan varði. Var þetta nóg. vonar Vefleiðarinn innilega að enginnn eigi eftir að upplifa þá þjáningu sem hann reyndi í dag.
Eftir gríðarlegar vangaveltur og pælingar hefur Vefleiðarinn fundið að dómarastörf eru ekki hans köllun í lífinu. Vefleiðarinn gerðist svo kræfur í gær að reyna að dæma leik í Háskóladeildinni og eftir hreint út sagt kostulega framistöðu í 80 mínútur játaði vefleiðarinn sig sigraðan og mun vonandi aldrei dæma kanttspyrnuleik framar. Knattspyrnunni og þvílíkum liðum til mikils léttis.
6.11.01
5.11.01
Í Grikklandi til forna var ekki óalgengt og taldist til upphefðar ef piltar kæmust í læri hjá sér eldri mönnum. Ekki var síður óalgengt að eldri mennirnir fengju greitt fyrir þjónustu sína með kynferðislegum greiðum frá skjólstæðingum sínum. Var ekkert sjálfsagðara. Nú hefur Vefleiðarinn fengið staðfest frá háttsettum manni innan skátahreyfingarinnar, að svo sé málum háttað innan þeirrar stofnunar að Forn-Grikkir hefðu sæmt sér vel. Eru innan hreyfingarinnar Öldungar sem taka sér oftar en ekki fleiri en einn pilt til leiðbeiningar og sem mér var tjáð er sami mátinn viðhafður hjá þeim og í Grikklandi hinu forna. 4.11.01
Vefleiðarinn tók á leigu um daginn myndina Boondock Saints og mæli ég eindregið með myndinni. Er margt stórgott í myndinni, eins og atriðið með klósettið og hvernig Rocco hélt afram að tala eftir að hann var sleginn niður. Snilld.
Ég sá einnig nýlega myndina Road Trip sem kom skemmtilega á óvart. Það er alltaf jafn skemmtilega sjarmerandi að sjá hálf þrítuga pilta leika hressa unglingspilta. Eftir margar fyrirspurnir um eitt atriði myndarinnar um hvort hægt sé að framkalla fullnægingu um rectum er þetta að segja. Það er hægt. Skýringuna má finna í því að fósturfræðilegur uppruni blöðruhálskirtils, sem á fagmáli kallast prostata, er hinn sami og hins dularfulla g-bletts, það eru paramesonephric ducts. Því má með sanni segja að blöðruhálskirtillinn sé g-blettur karlmannsins. Fyrst Vefleiðarinn er kominn á svona fræðilegar nótur þá er hér skemmtileg síða í líffærafræðum Vefleiðarinn var næstum búinn að gleyma Liverpool fc vann manjúnæted 3 - 1 í dag. Seint mun slíkt kallast leiðinlegt! |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||
Hlekkir |