Enn brýtur vefleiðarinn blað í þróunarsögu internetsins. Sérhannaður vefspilari kominn upp. Njótið tækninnar.
posted by ellinn at fimmtudagur, maí 24, 2007 [edit]
FACE, já in your face hugsaði pennasölumaðurinn frá Sjálfsbjörgu.
Það banakaði upp á pennasölumaður frá Sjálfsbjörgu að selja penna. Var heppilega nýbúinn að æfa hvítu lygina og endurtaka í samtali við spegilinn; Heyrðu ég er ekki með neinn pening á mér.
Öryggið uppmálað kastar maður fullyrðingunni fram, en áður en setningunni er lokið hefur gaurinn dregið upp posa. Nú eru góð ráð dýr, hann konfronterar mann. Maður búinn að gefa í skyn að maður hefði hug á að kaupa penna en ekki haft efni á honum, en forsendur hafa breyst, á maður að láta standa sig í lyginni ...
...
- en bíddu við --- Var ég búinn að segja frá nýja Sjálfsbjargar pennanum mínum ...
posted by ellinn at mánudagur, maí 21, 2007 [edit]
Óformleg könnun hefur leitt eftirfarandi í ljós, th er besti unglæknir Hringsins og gerir gott betur með því skora hæst sem geðheilbrigðasti unglæknirinn á Hringnum
posted by ellinn at sunnudagur, maí 20, 2007 [edit]
Það er geðveik Eurovisjón stemmning. Hef lofað Eirík Hauksson, rauða ljónið háttstert, lofað hann í fyrsta sætið. Miðað við það sem heyrst hefur hingað til í forkeppninni, þá er fyrsta sætið ekki svo óraunhæft.
Áfram Evrópa (skrifað 20:30, lag 21 að spila, þ.e. framlag Andorra)
klukkan 21:41.
Ég er svo reiður það á að banna fyrrum ráðstjórnarríkin frá Júróvisjón, hvernig í andskotanum komst Búlgaría áfram. Þetta er rugl ... Rugl
posted by ellinn at fimmtudagur, maí 10, 2007 [edit]
Liverpool hefur búið lengi af því að hafa Guð í herbúðum sínum og nú hefur Búdda bæst í hópinn.
posted by ellinn at miðvikudagur, maí 02, 2007 [edit]