asdf hvurn hefði grunað merkileg þessara stafa.
posted by ellinn at mánudagur, september 30, 2002 [edit]
Ég er Connor MacLeod af MacLeod ættinni.
Ég er ekki connor MacLeod en að mörgu leiti erum við svipaðir. Í gær varð ég árinu eldri en ég var í fyrradag. Ég vaknaði í gær hokinn af reynslu en breyttur. Í þetta sinnið tapaði ég getunni til að læra nýja hluti.
Að þessu leiti erum við Connor eins. í hvert skipti sem hann drap mann, öðlaðist hann reynslu þeirra en í hvert sinn breyttist hann, hann varð fátækari á sálinni því að drepa var ekki hans.
Þegar ég á afmæli, þá er ég í raun Connor MacLeod, en ekki af Macleod klaninu.
posted by ellinn at föstudagur, september 27, 2002 [edit]
Ristill, zoster, er ekki af hinu góða. Ristill í andlitið er hreinn viðbjóður. Trigeminal sársauki er einn versti sársauki sem hægt er að finna fyrir.
Biðst afsökunar á fræðiheitum og framandi hugtökum. Þessi færsla er ekki hugsuð fyrir leika.
posted by ellinn at miðvikudagur, september 25, 2002 [edit]
Nýji Pop-up filterinn er að gera góða hluti. Ég dásama þetta yndislega ping hljóð sem kemur þegar óvelkominn auglýsingagluggi er drepinn í fæðingu. Ég veit að ljótt er að drepa en stundum kemst maður ekki hjá því að hafa gaman af drápunum.
posted by ellinn at mánudagur, september 23, 2002 [edit]
Helvítis KR. Ég bölva Fylki meir fyrir að mæta upp á skagann án minnsta áhuga á að spila fótbolta. Ekki var að sjá að sigurvilji byggi í brjóstum þessara manna.
Ps. Max Payne lofar mjög góðu
posted by ellinn at sunnudagur, september 22, 2002 [edit]
Félagi minn, þindarlaus miðjuvélin hjá ÍBV, var dæmdur af aganefnd KSÍ í leikbann nú í síðust umferð Íslandsmótsins. Ég fylgdist með pilti og hann komst að þessu með því að lesa fregninrnar í morgunblaðinu. Hvurslags er þetta. Fá menn ekki að verja sakleysi sitt. Eru menn ekki kallaðir til þegar dómur er up kveðinn, beiðast miskunnar, ef náð hefur ekki hlotist fyrir árvökulu auga dómsvaldsins. Hvar hittist þessi aganefnd. Af hverju eru þessar ákvarðanir teknar fyrir huldum dyrum í bakhúsum öngstræta. Ég mótmæli réttarmorði aganefndar KSÍ.
posted by ellinn at fimmtudagur, september 19, 2002 [edit]