31.3.02
29.3.02
Skil þetta ekki.
Elias Gudbrandsson = Bambi Smurf Elias Thor Gudbrandsson = Cletus the Slack-Jawed Smurf Þetta er óskiljanlegt!!!
Það yljar óneitanlega um hjartaræturnar þegar maður verður vitni að kraftaverki, sérstaklega þegar það kemur manni sjálfum til góða og gerist á ekki ómerkari dag en skírdag sjálfan einn af helgustu dögum kristinna manna.
Ég varð fyrir því óhappi ekki alls fyrir löngu að missa forláta GSM símann minn á hellulagða gangstétt. Við það gerðust ósköp og skelfing, skjár símans sem var tæpur fyrir drapst. Sama hvað gert var að allt kom fyrir ekki. Vottaði ekki fyrir lífsmarki, skjárinn var úrskurðaður látinn. En nú í dag reis hann eins og Fönix úr öskustónni, þessi samlíking er notuð því í kjölfar slíks kraftaverks er óþarfi að Guð-lasta og segja að síminn hafi stigið upp frá dauðum eins og Herrann á þriðja degi. Nei, ekkert Guðlast um páska og enn síður þegar kraftaverkin eru að gerast. Verið róleg því Guð og sonur Hans Jesú eru nær en þig grunar. 26.3.02
25.3.02
23.3.02
21.3.02
Er ég var yngri miklu yngri en í dag, ég þurfti enga hjálp með að syngja þetta lag.
Nú er ég eldri, ekk'eins viss í minni sök ... - Bítlarnir á íslensku 19.3.02
Skuldbindingar. Það fer óneitanlega í taugarnar á Vefleiðaranum þegar fólk ræsir gangbrautarljós, en er svo löngu farið yfir eða í burtu þegar græni kallinn er kominn og öll umferð stöðvuð. Við það að ýta á hnappinn er fólk búið að skuldbinda sig til að fara yfir, þegar græni kallinn skín. Sambærilegt við þetta væri ef að Forseti Bandaríkjanna hæfi kjarnorkuárás á Rússland. Hann ýtti á hnappinn og tæki sér svo frí það sem eftir lifði dags, jafnvel út alla vikuna. Það gefur auga leið, svona gerir maður ekki. Ef fólk hefði vott af sómatilfinningu, færi það yfir á græna kallinum. Ef það ætlar ekki að bíða, hvaða tilgangi þjónar að ýta á hnappinn. 18.3.02
17.3.02
Rafmagnið fór af heima. Öryggi sló út. Í leti og þreytu nennti Vefleiðarinn ekki að stilla vekjaraklukkurnar sínar. Heldur leit hann á mismuninn á því sem að vekjarklukkurnar sýndu og hver rauntíminn var. Eitthvað klikkaði því Vefleiðarinn er kominn á fætur og klukkan ekki orðin 9 á sunnudagsmorgni. 15.3.02
Það er ein spurning í Skjáleik Ríkissjónvarpsins sem orkar tvímælis.
Spurt er hver sé mesti sjálfsvarnarmeistari sípðustu aldar Brús Lí, Tjökk Norris eða Bjarni Friðriksson. Bjarni Friðriksson varð aldrei frægur þannig að að er ekki hann. Hvort er það Bruce Lee eða Chuck Norris. Bruce Lee virðist réttasta svarið en hann er dauður. Chuck Norris virðist því í fljótu bragði vera færari í að verja sjálfan sig. Chuck Norris er mesti sjálfsvarnarmeistari seinustu aldar. 14.3.02
13.3.02
12.3.02
Fátt gleður Vefleiðarann eins og Kalli og Kobbi Voru þeir hið eina góða sem var að finna í Þjóðviljanum sáluga, fyrir utan hjartakrossgátuna. Hér kemur smá textabrot úr Kalli og Kobba.
Calvin: Dad, how come old photographs are always in black and white? didn't they have color film then? Dad: Sure they did. In fact those old photographs are in color. It's just back then the world was black and white then. Calvin: Really? Dad: Yep. The world didn't turn color until sometime in the 1930s, and it was pretty grainy color fora while, too. Calvin: That's really weird. Dad: Well, truth is stranger than fiction. Calvin: But then why are old paintings in color?! If the world was black and white, wouldn't artistis have painted it that way? Dad: Not necessarily. A lot of great artists were insane. Calvin: But ... but how could they have painted in color anyway? Woudn't their paints have been shades of gray back then? Dad: Of course, but they turned colors like everything else did in the '30s. Calvin: So why didn't old black and white photos turn color too? Dad: Because they were color pictures of black and white remember?
Teamtalk greinir svo frá:
The proud record dates back over 36 years to when they played their first European game against Reykjavik in 1965.
Þeim mun fyrr sem að krabbamein greinist þeim mun betra, lífslíkur aukast og meðferð verður öll betri. Eitt af algengari krabbameinum sem fyrirfinnst er brjóstakrabbamein. Vegna staðsetningar brjóstanna á ekki að vera vandkvæðum bundið að fylgjast með þeim. Sjálfsskoðun er mikilvæg í því tilliti. Það á ekki að standa neinni konu fyrir þrifum að þreifa á sér brjóstin, í leit að hnútum. En eins og við allt annað sem maður gerir þarf að vanda verkið.
Það er mjög gott fyrir ykkur stelpur að þreifa brjóstin í sturtu, heitt vatnið sem leikur við holdið mýkir upp brjóstin. Gott er að sápa sig. Fingurnir renna betur eftir sápulöðrandi brjóstinu. Ekki má gleyma geirvörtunni hana þarf að þreifa líkt og brjóstið. 10.3.02
Rétt er getið hjá dyggum lesendum að þessi Pétur er enginn annar en fyrrum fyndnasti maður Íslands og ómögulegt er um það að segja hvort hann sé verri helmingur DingDong. Hvað fær annars skynugan og geðheilbrigðan mann að fá eiginhandaráritun slíks mann á brjóstið á sér. Ölvun? ... hver veit.
Sú hugsun fór reyndar um huga Vefleiðarans, þessi maður fílar sig sem fyndinn og frægan. Hann vill helst hafa þann status að kvitta þrýstin brjóst ungra og fagurra fljóða. Í stað þess fær hann mikinn og loðinn brjóstkassa til að kvitta á. Vefleiðarinn Kvittið hér 9.3.02
Vefleiðarinn biður lesendur sína að taka tillit til ölvunar hans.
Vefleiðarinn hitti á förum sínum um miðbæ reykjavíkur í ölvun sinni á pétur einhversson á Kaupfélaginu. Rann þá sú hugsun um huga Vefleilðarans, hvað er ömurlegra en eiginhandaráritun þessa Péturs. Vefleiðarinn komst að því. Að fá eiginhandaráritun téðs Péturs á loðið brjóst vefleiðarans, er hámark niðurlægingar ölvunar sérhvers manns. Ella Frá: Pésa 6.3.02
Vefleiðarinn samhryggist R Kelly. Hann samdi víst þessa ballöðu til móður sinnar, í kjölfar þess að hún féll frá.
Var það ekki R Kelly sem spurði sig: "if could turn back the hands of time"
Vefleiðarinn væri því fegnastur ef hann bjyggi yfir þeim hæfileika. Það er því hörmung að í staðinn fær hann þetta "yndislega" lag hans R Kelly á heilann. Heimurinn er greinilega óbilgjarn og miskunnarlaus. 5.3.02
Ég byrjaði á þessum andskota á táningsárunum. Fyrst var þetta saklaust fikt, stalst í þetta hjá pabba. En svo hélt þetta áfram og ekki varð aftur snúið, maður gat ekki hætt. Þetta var orðið erfitt, að gera þetta upp á hvern einasta dag. Hvernig er ehægt að fela svona nokkuð, en það gekk. Ég hef oftar en ekki reynt að hætta þessu. En maður losnar aldrei við áreytið. Alltaf er hnýtt í mann ef maður hættir í einhvern tíma. Lengst hef ég haldið út í tvo mánuði en þá er pressa komin frá foreldrahúsum. Maður fellur alltaf.
Ég heiti Elías og ég raka mig 2.3.02
Þessi hér frétt er hreint ótrúleg. Nú hef ég reyndar ekki fylgst með Britney í smá tíma, en hef ekki heyrt til þess fyrr en nú að hún hafi annað í hyggju en að viðhalda skírlífi sínu fram yfir giftingu. Í greininni segir Britney að henni þyki súkkulaði betra en kynlíf. Af þessu má álykta tvennt:
1) Britney talar ekki út frá eigin reynslu, hún er að vísa í rannsóknir sem segja að stór hluti kvenna myndi fórna kynlífi fyrir súkkulaði. 2) Britney er hér að vísa í eigin reynsluheim, þ.a. Justin er ekki að standa sig í stykkinu. 1.3.02
|
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
||||||
Hlekkir |