læknar eru að mínu viti lélegir bissness menn, preventive medisine er það ekki að skjóta sig í fótinn.
posted by ellinn at sunnudagur, september 25, 2005 [edit]
Loksins loksins eftirsótt verðlaun. Áttaþúsundasti gesturinn fær einstök verðlaun. Verðlaunin hafa útleyst fleiri en eina heimsstyrjöld. Já, verðlaunin eru hópferð til Akureyrar í ölvun til Vefleiðarans.
posted by ellinn at fimmtudagur, september 22, 2005 [edit]
í dag er ég svo glaður
svo glaður svo glaður
í dag er ég svo glaður
sem aldrei var ég fyrr
- Alfreð önd.
Nú veit ég í hvað alfreði söng, internetið er komið heim. Veraldarvefurinn er minn. Bitorrent er komið af stað, ótakmarkað niðurhal. Mogginn sem ekki kom um helgina er kominn í hús. Og allt er að virka. Gæti þetta verið betra?
posted by ellinn at mánudagur, september 19, 2005 [edit]
held að ég skrifi ekki neitt hér fyrr en internetið er komið heim til mín.
Ég sakna netvæðingarinnar ... ég vil frelsi.
posted by ellinn at þriðjudagur, september 13, 2005 [edit]
Það er kominn september. Til hamingju.
Akureyri er fegursti staður á jörðu og alltaf gott veður. Þegar slyddan sló framan í andlit vefleiðarans á leið til vinnu sinnar. Brosti kappinn og hugsaði með sér: "gott er afstætt".
Ekki ólíkt því hvort er betra súkkulaði M&M eða M&M með hnetum. Hnetur nammi gott.
Akureyringum hlýtur að þykja brúnt M&M betra.
posted by ellinn at miðvikudagur, september 07, 2005 [edit]