The parking lot is full var asskoti sniðug síða í den, en hætti fyrir nokkrum árum, held að síðan þeirra sé enn til en einn lítill Janus fann eftirfarandi síðu á netinu sem svona að einhverju leiti nær þeim húmor.
Já, hér er svo
síðan
posted by ellinn at miðvikudagur, febrúar 28, 2007 [edit]
Hef verið að reyna að finna hladbær rök fyrir andstöðu á Crocs skóm, hef óstaðfestar heimildir fyrir því að Crocs leiði rafmagn. Illa hefur gengið að finna haldbær rök gegn þeim og helstu huglægu rökin eru að þeir eru ljótir.
Einnig hefur það að þeim sem íklæðast Croc skóm fjölgar með veldisvexti dregið úr vægi þess smekks, eða eru allir smekklausir.
Ætla ekki að gerast eini hrópandinn í eyðimörkinni og vísa á þá sem hrópa úr kanadísku eyðimörkinni
hérPs. smá djókur í lokin "maður er ekki fyrr búinn að bóka herbegi á Sögu og þá er ráðstefnan bönnuð"
posted by ellinn at þriðjudagur, febrúar 27, 2007 [edit]
Fórnarlamb tækninnar.
Þarf að nota síma mikið til að diktera inn nótur, nú er maður orðinn svo skilyrtur að í hefðbundnum símtölum er maður farinn að segja punktur í lok setningar.
posted by ellinn at fimmtudagur, febrúar 22, 2007 [edit]
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að höfundurinn að Heros, sé einnig höfundur Crossing Jordan, einnig sem hann var skríbent að Judging Amy þáttunum, sem reyhdar skýrir af hverju maður gerði engan greinarmun á tveim síðasttöldum þáttunum.
Það er samt himinn og haf á milli Heros og hinna þáttanna. Herra Kring er loksins farinn að gera góða hluti.
posted by ellinn at mánudagur, febrúar 12, 2007 [edit]
Það er víst að maður þurfi að vera fastandi í a.m.k. sex tíma fyrir svæfingu ef vel á að vera. En það má fara í sund klukkutíma eftir mat. Það er eitthvað ósamræmi í þessu.
posted by ellinn at föstudagur, febrúar 09, 2007 [edit]
hmmm ...
Arrrgg ...
Síðan má smella
hér til að kynna sér málið nánar.
posted by ellinn at miðvikudagur, febrúar 07, 2007 [edit]