300 Spartverjar voru viss vonbrigði, það vantaði alveg vá faktorinn sem maður bjóst við . Þar hefur spilað inn í að maður bjóst við annari Sin City, sem varð til þess að ágætasta mynd olli vonbrigðum. Gef myndinn 9 fyrir choregrafíu bardagaatriða og fyrir ofbeldið og véfréttina, en hún fær í heildina 7 þar sem vá faktorinn vantaði.
Ef gefið væri fyrir lendskýlur og magavöðva fengi myndin 10.
Ps. að lokum Ingvi Hrafn er ekki gott útvarpsefni og enn síðra sjónvarpsefni.
posted by ellinn at miðvikudagur, mars 21, 2007 [edit]
Fjármálarásin er fljótt á litið með verstu sjónvarpsdagskrá sem hægt er að hugsa sér.
Hrafnaþing er meira en 80% þáttanna og megnið af því endursýnt hrafnaþing, Ingva Hrafns. Spái því að Fjármálarásin lifi skemur en NFS.
posted by ellinn at miðvikudagur, mars 14, 2007 [edit]
Það er Hemúll í okkur öllum. En hans er fyrst getið á prenti í skáldsögum Tove Janson um múmínálfana.
Í Wikipediu er Hemúlnum lýst sem "The Hemulen (Hemulen, Hemuli) - an avid stamp collector. Hemulens feature frequently in the books. His cousin collects butterflies, and another is an avid skiier. The Hemulen's Aunt raised Moominpappa in an orphanage. Other characters frequently find the Hemulens annoying or overwhelming, as they can be somewhat loud, bossy, abrasive and insensitive, but they are well intentioned and usually have other redeeming qualities.."
Á
múmínheimasíðunin hinni finnsku er hemúlum frekar lýst sem "the Hemulens have misdirected social tendencies,are bad listeners and generally lack all sens of humour. They are often fanatic collectors or authorities with lesser powers. But there are of course many variations."
Að lokum má þess nefna að Hemúll er einnig naumhyggjutölvupoppsveit sem var tilnefnd sem athyglisverðasta band músíktilrauna 2000, er þeirra frægasta verk
Reykjavíkurljóð
posted by ellinn at þriðjudagur, mars 13, 2007 [edit]
Enn ein stórglæsileg tækninýjung hjá vefleiðaranum, nú er hægt að fylgjast auðveldar með gífurlega líflegum umræðum sem myndast í kringum athugasemda, eins og "athugulir" hafa tekið eftir.
posted by ellinn at sunnudagur, mars 04, 2007 [edit]