29.4.03
Fólk er ekki að átta sig á mikilvægi Tónleikahúss fyrir Ísland. EF til er tónleikahús, þá er forsenda fyrir að halda Kontrapunkt á Íslandi. Í íþróttaumfjöllun er sífellt verið að ræða um kosti þess að vera á heimavelli. Þá og fyrst þá ættum við Íslendingar raunhæfan möguleika á sigri í kontrapunkti með tólfta manninn á varamannabekknum. Áfram Ísland, áfram tónleikhús.
Einhvurntíman var sagt: "Allir menn eru jafnir, en ég vil ítreka þann misskilning að ***** séu menn"
Man ekki hvað stjörnurnar standa fyrir. 28.4.03
27.4.03
Well, u-- um, can we come up and have a look? What Monty Python Character are you? brought to you by Quizilla og maður er líka Anthony - You love the fact that you're the life of the party. You crave attention and know how to get it. Just remember, its more important to be yourself than to be the asshole everyone thinks you are. Which Red Hot Chili Pepper Are You? brought to you by Quizilla
Undarleg þessi ásókn í paravini. Þörf pars í að eiga sér vina-par. Þróunin er oftast á þessa leið parið verður til og fyrstu mánuðina þegar lostinn og ástin er í öfgafullum blómga, dregst parið úr uprrunalegu og náttúrulegu vinaumhverfi sínu. Svo kemur alltaf sú stund að þörf fyrir félgasskap annarra en sjálfra sín ratar í hugi og hjörtu viðfanganna. Þá er að fara með skotið milli lappanna og vinna sig á ný inn í gamla vinahópinn, en samt með nýjum formerkjum. Oftar en ekki vex slíkt verk svo í augum að ekki er lagt út í það verk. Þá er lausnin: Við erum par, er ekki eðlilegt að nýju vinirnir okkar, það er þeir sem okkur eru þóknanlegir séu par. Það er sniðugt, það þarf fjóra til að spila kana, og skemmtilegra að fara fjögur út að dansa. [ þetta er yfirvarpið, raunverulega hugsunin er að losna við einhleypings ógnina ].
Þá er parið valið eftir einhverjum skilmerkjum, oftast er unnið útfrá stigakenningunni [finnst á krúel]. 25.4.03
Þegar lagt er í líkamlega áreynslu er ekki gott að vera svangur. Enn síðra er að vera vel mettur. Þetta er slæmt mál. Með þetta í huga var lagt af stað í kvöldverð. Æfingaleikur er á eftir hjá Ástinni og enn gerði Vefleiðarinn sem hans von og vísa, vandi er til. Sá hann strikið og steig þar yfir. Fússball eftir 75 mín, kennski að kella hafi haft rétt fyrir sér. "Bobby fússball is the devil" ... En Steps sungu einmitt "Better the Devil You Know". Nú loksins tekur þetta endi 24.4.03
Deildin þarfnast mín. Nenni ekki að lesa þennan helvítis póst frá Háskólanum, sennilega er það þess vegna sem afgreiðslu stúlkan hreytti framan í saklausa drengina, "af hverju eruðið ekki búnir að skrá ykkur", um daginn. Aldrei er hægt að gera þeim til geðs sem eiga að þjónusta mann. gott ef ekki að ríflegi 30 kallinn sem einhverntíman verður framreiddur endi beint í hennar vasa. Samt er skítkastið í gangi. Nemendaskráin er upplífgandi staður.
Alltaf hellist vanlíðan yfir þegar Samfylkingarvibbinn Björgvin G opnar á sér trantinn, reyndar er það að fara úr öskunni í eldinn, því nógu slæmt er að horfa á *#*##* [aðgát skal höfð í nærveru sálar]. Dýrðargripurinn, gullkálfur og ópíum lýðsins, sjónvarpið varð næstum því saklaust fórnarlamb þegar maður heyrði S og U menn halda því fram að endurgreiðsla á námslánum bryti gegn því sem LÍN á að vera. Jöfnunartæki til náms, án tillits til efnahags. Glæsilegt! 22.4.03
Þeir bregðast ekki vinirnir í Grandaddy. Plata þeirra Concrete Dunes, nýkeypt er að vinna sig strax í fyrstu hlustun. Lágstemmd tónlistin, southern lo-fi einhvernveginn ef maður á setja á sig mannvitsbrekku svip og fabúlera og þykjast hafa vit á hlutunum. Þeir eru að rokka feitt. Grandaddy, þegar þú lest þetta sendu mínum línu hvenær þið gerið stopp á landi ísa, nánar tiltekið eyju djöfla. Þið hljótið að koma, þið fílið sópranós er það ekki... 17.4.03
Google er ein besta leitarvélin og hefur fólk margsinnis ratað úr villu veraldarvefjarins inn á hlýja og bjarta velli vefleiðarans. Hefur það bæði glatt vefleiðarann og þær, nú hólpnu sálir, sem þangað rata. En af hverju hefur google hafnað vefleiðaranum. Áður hefur verið minnst á að það virðist skipta máli hvar í heimnum maður er staddur, enda ekki hægt að ætla öllum þann sannleik sem á síðu þessari er að finna, því sumir vaða trúvillur miklar.
Svo réttu striki sé haldið, þá veit vefleiðarinn fyrir vissu að ef leitað var að hundtyrkjanum á google þá var Vefleiðarinn á blaði, einn þriggja. Var sú vissa til þess að vekja upp gleðina sem áður var minnst á. Hundtyrkjanum var því flett upp á google, kom þá upp ein leitarniðurstaða. Þar var Vefleiðarinn ekki lengur á blaði. Hvernig stendur á því að Vefleiðaranum er hafnað af Google? Nú er Google búið að kaupa blogger, hvernig stendur á því að þeir hafna eigin skjólstæðing? Á manni ekki að leyfast að finna gleðina? Meiga draumar ekki rætast, hvar er draumurinn? Þakka ég google hnífinn í bakið ... það er víst hætt að blæða en sárið er opið ... Google hvað ertu að gera með saltstautinn, viltu leggj'ann frá þér. Google mér er alvara .....................................................................
Þóttist vera búinn að finna gleðina, svo heyrði maður á tal tveggja manna að bloggið væri púslinn á þjóðfélaginu. Það dró úr gleðinni alltof mikil ábyrgð. 15.4.03
Það er svoundarlegt að ef einhver kastar fram spurningu hve lengi á eitthvað að vara, eða hve algildir sumir hlutir eru þá virðast sumar tölur heppilegri til ágiskunar en aðrar.
Dæmi hve lengi á einhver að vera á sýklalyfja meðferð. 5-7 dagar klassískt svar, 7-10 líka. Ef spurt er um undantekningar tilvik þá eiga 15 og 30 % mjög oft vel við. Já þetta er ótrúlegt. Ps. ófriður og stríð er sá neisti sem kveikti bál siðmenningar hins vitiborna manns 14.4.03
Það var Justin Timberlake helgi á MTV ... það er eitthvað skrítið. Þekki bara tvö lög með honum einum og að spila þau í heila helgi það er ekki að meika það.
12.4.03
hinir saklausu verða alltaf fyrstu og seinustu fórnalömbs stríðs. Franskar kartöflur voru svo ofsóttar að þær fóru að kalla sig freedom fries, en samt lauk ofsóknunum ekki.
Jæja, nú er vefleiðarinn eitthvað farinn að rugla það má rétt vera en eitt af raunverulegum fórnarlömbum þessa stríðs er Mark Knopfler. Jú lag hans með Dire Straits Brothers in Arms var tekið að spilunarlistum útvarpsstöðva í States og UK. Já, hinir saklausu eru hinir einu sigruðu í stríðsrekstri og er tapið alltaf þeirra. 10.4.03
Bróðir er er kominn með Blogg, sem er gaman. Hann hefur skemmtilegt útlit á síðunni ... verð að athuga með mitt útlit sem fyrst. Breytingin sem gerð var um daginn var óheppileg.
USA er undarlegur staður ... þar sem allt er stærst mest og best er umhverfið ekki haft snyrtilegt og hlýlegt. "let´s make them functional" hefur kapítalistinn sagt og ekki hugsað um útlitið. Á sumum subway stöðvunum var reynt að vera með smá mósaik ... en allur annar frágangur skemmileggir svo auganu líður ekki vel. Annars er epplið stóra eins og Reykjavík ... bara stærri 2.4.03
jæja ... nú er kominn tíminn á Wurth dagatal. Wurth hafa aldrei brugpist með fegurð dagatalanna sinna. síðast liðið ár voru þeir með Naomi Campbell, Frankie Ryder og Raquel Zimmermann, var naomi þeirra síst, enda lítið spennandi karakter á ferð.
Hef ekki enn nálgast Wurth í ár. Starir því Frankie á mig af veggnum þegar þessi orð ritast. þó er hún síðri en Raquel. Fröken Zimmermann ef þú átt einhvurntíman leið um Ísland ... þá er Vefrleiðarinn vel til í að giftast þér ... engin pressa |
Músík
AthugulirEldri skrif
02/01/2001 - 03/01/2001
03/01/2001 - 04/01/2001
04/01/2001 - 05/01/2001
05/01/2001 - 06/01/2001
06/01/2001 - 07/01/2001
07/01/2001 - 08/01/2001
08/01/2001 - 09/01/2001
09/01/2001 - 10/01/2001
10/01/2001 - 11/01/2001
11/01/2001 - 12/01/2001
12/01/2001 - 01/01/2002
01/01/2002 - 02/01/2002
02/01/2002 - 03/01/2002
03/01/2002 - 04/01/2002
04/01/2002 - 05/01/2002
05/01/2002 - 06/01/2002
06/01/2002 - 07/01/2002
07/01/2002 - 08/01/2002
08/01/2002 - 09/01/2002
09/01/2002 - 10/01/2002
10/01/2002 - 11/01/2002
11/01/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
06/01/2006 - 07/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
04/01/2007 - 05/01/2007
05/01/2007 - 06/01/2007
06/01/2007 - 07/01/2007
07/01/2007 - 08/01/2007
08/01/2007 - 09/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007
10/01/2007 - 11/01/2007
11/01/2007 - 12/01/2007
01/01/2008 - 02/01/2008
03/01/2008 - 04/01/2008
04/01/2008 - 05/01/2008
05/01/2008 - 06/01/2008
06/01/2008 - 07/01/2008
07/01/2008 - 08/01/2008
|
|||||||||
Hlekkir |