kemst ekki yfir það. Skrifaði Nýir með joði um daginn. Banal mistök ... glætan að maður fái starfið núna
posted by ellinn at þriðjudagur, júlí 29, 2003 [edit]
Loksins!
Hef mikið rætt um hatrið sem ríkir í garð strætó, seinustu vikur hefur það verið að magnast. Hef tekið strætó í vinnuna þetta sumarið ( verð að eignast bíl ) við lítinn fögnuð. Þetta var temmlegt reyndar hjá SVR hundraðogtían svo sjöan og það hafðist að stimpla sig inn á slaginu átta.
Gerðar voru breytingar 12. júlí tímasetningum sjöunnar var breytt. Þannið var ekki lengur hægt að taka hundraðogtíuna til að ná þeim vagni heldur var mál að leggja tíu mínútum fyrr. Það sem hefur orsakað sívaxandi pirring er að hin nýja tímaáætlun sjöunnar hefur ekki staðist. Legg tíu mínútum fyrr af stað, tek tíuna, bíð í ártúni, sé hundraðogtíuna renna í hlaðið svo kemur sjöan og það rétt hefst að stimpla sig inn klukkan átta.
Fyrsta sinn í dag kemur sjöan á undan hundraðogtíunni. Vonandi að það haldi og að vonbrigðin að taka ekki sénsinn á hundraðogtíunni eyðileggi ekki það litla sem eftir er af sumri.
Loksins!
posted by ellinn at föstudagur, júlí 25, 2003 [edit]
Pirrandi þegar maður les eitthvað og finnur það svo alls ekki í textanum sem var lesinn. Stundum er eins og ímyndun ein ráði því sem lesið er. Nú vill svo til að ég gekk fram á svaladyr um daginn sem á var miði, leit snöggt við eitthvað fangaði athygli mína. ég las ... bannað að stökkva af svölunum ... Gekk tvö skref áfram stoppaði, hugasaði getur þetta verið, steig skrefin tvö aftur og las ...´bannað að reykja á svölunum ...
posted by ellinn at mánudagur, júlí 21, 2003 [edit]
Enn sumarfrí, en búinn að komast til botns í þeim málum sem voru að skemmileggja síðuna. En smá brávs í gegnum settings og þetta er vonandi komið í lag.
Það er merkilegt hvað OR leggur mikinn metnað í flutninga sína í nýjar höfuðstöðvar, nú er verið að laga allan aðgang og aðkomu að þeim. í því felst endurnýjun á bæjarhálsi. Við þann undirbúning fjarlægja menn hluti semeiga sér mikla menningarlega þýðingu. Búið er að fjarlægja flesta ef ekki alla ljósastaurana við bæjarháls. En þessir eeru ekki þeirrar gerðar sem borgarbúinn þekkir nú og lærði með harmkvælum að meta, nei verið er að fjarlægja hlekk við fortíðina. Einir seinustu viðarljósastaurarnir eru nú að hverfa, rafmagnasstaur með áföstum lampa sem lýsti upp myrk öngstræti borgarinnar eru nú að syngja sitt síðasta.
...
Enn sumarfrí
posted by ellinn at föstudagur, júlí 18, 2003 [edit]